Nýjast á Local Suðurnes

Umfangsmikil kannabisræktun stöðvuð – Rúmlega 6 kíló af kannabisefnum haldlögð

Myndin tengist ekki umræddu máli

Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo karlmenn í vikunni eftir að hafa fundið umfangsmikla kannabisræktun í húsnæði í umdæminu. Um var að ræða 1.155 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar og rúmlega 6 kíló af kannabisefnum.

Annar mannanna, húsráðandi, viðurkenndi að standa að ræktuninni svo og eign sína á efnunum.

Lögregla fór í tengslum við rannsókn málsins í húsleit á höfuðborgarsvæðinu, þar sem mennirnir eru búsettir. Í íbúð þess sem ekki átti ræktunina fundust ætluð fíkniefni á nokkrum stöðum. Um var að ræða hvítt efni, kannabis svo og stera. Þá voru mennirnir með samtals hundruð þúsunda í vörslum sínum og voru þeir fjármunir haldlagðir.