sudurnes.net
Umfangsmikil kannabisræktun stöðvuð - Gám þurfti undir plöntur og tæki - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í vikunni umfangsmikla kannabisræktun í umdæminu. Hún var til staðar í íbúð sem hafði sýnilega verið leigð gagngert til þess að framleiða þar kannabisefni, því enginn bjó í henni. Karlmaður og kona voru handtekin á vettvangi og viðurkenndi karlmaðurinn að hafa staðið fyrir ræktuninni. Rökstuddur grunur leikur á að þarna hafi farið fram dreifing og sala fíkniefna. Fengin var dráttarbifreið með gám til að fjarlægja plönturnar og mikið magn tóla og tækja sem notuð höfðu verið við framleiðsluna, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum, en þar kemur einnig fram að málið telst vera upplýst. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Meira frá SuðurnesjumKona á sjötugsaldri býr á tjaldsvæði – Sandgerðisbær hafnaði viðræðum við ÍLS um kaup á húsnæðiLögregla lagði hald á kannabisklumpa og hakakrosstöflurVeglegar gjafir til Listasafns Reykjanesbæjar – Safnið á nú um 700 listaverkTinna enn týnd – Formlegri leit hættLögðu hald á fíkniefni fyrir um 14 milljónir króna í húsleitum á SuðurnesjumFundu vopn og fíkniefni við húsleitMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkLaga þrep við Brimketil – “Tökum hratt og [...]