Um 3.000 undirskriftir hafa safnast gegn borunum í Eldvörpum – Söfnunin enn í gangi
Tæplega 3.000 manns hafa tekið þátt í undirskriftasöfnun þar sem borunum HS Orku í Eldvörpum er mótmælt, undirskriftasöfnunin var sett af stað um miðjan desember. Aðstandendur söfnunrinnar stefna að því að ná 10 þúsund undirskriftum, áður en listinn verður færður HS Orku og Grindavíkurbæ sem samþykkti tilraunaboranir fyrirtækisins síðastliðið haust.
Á vef undirskriftasöfnunarinnar segir að Eldvörp séu einstakar jarðminjar á heimsvísu og að hvergi í heiminum megi upplifa jarðvirkni milli tveggja jarðskorpufleka líkt og þar. Þá hafi svæðið að auki að geyma söguleg verðmæti.
Stefnt var að því að ljúka söfnuninni um miðjan janúar síðastliðinn en fram kom í máli aðstandenda söfnunarinnar að mögulegt væri að undirskriftum yrði safnað lengur ef vel gengi, söfnunin er enn í gangi á vef avaaz.org, en ekki náðist í þá aðila sem standa að söfnuninni til að fá upplýsingar um hversu lengi hún muni standa yfir.
Líklegt að framkvæmdir hefjist á þessu ári
Framkvæmdarleyfið sem Grindavík veitti HS Orku síðastliðið haust gildir í eitt ár og því verður að teljast líklegt að framkvæmdir hefjist innan þess tímaramma. Tveir staðir koma helst til greina, sem borstaðir, en á öðrum staðnum er nú þegar borpallur. Ekki mun þó vera óalgengt að framkvæmdaleyfum sem þessum sé framlengt og þó líklegt sé að framkvæmdir hefjist á þessu ári þarf það ekki að vera.
Fram kom í máli Ásgeirs Margeirssonar á vef mbl.is í janúar síðastliðnum að í heild væri áætlað að tilraunaboranirnar geti orðið allt að fimm talsins, en í framhaldinu gæti tekið við virkjun svæðisins. Endanleg ákvörðun verður þó ekki tekin um það fyrr en niðurstöður rannsókna liggja fyrir.