sudurnes.net
Um 170 smáskjálftar á einni klukkustund - Local Sudurnes
Um 170 jarðskjálftar urðu í jarðskjálftahviðu um og eftir miðnætti í nótt. Hviðan varð rétt austur af Sýlingarfelli á kvikuganginum og stóð yfir í rúma klukkustund. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Veðurstofunnar, en þar segir að flestir skjálftanna hafi verið smáskjálftar, undir tveimur að stærð. Einn skjálfti mældist 3,0 að stærð á fimm kílómetra dýpi rétt norður af Hagafelli. Sá skjálfti varð kl. 0:26. Jarðskjálftahviður hafa verið viðvarandi síðan landris hófst 27. október við Þorbjörn, þó að nokkuð rólegt hafi verið síðustu daga, segir í tilkynningunni. Engar vísbendingar eru um gosóróa að svo stöddu. Meira frá SuðurnesjumÓvissustig vegna landriss á ReykjanesskagaUm tvö þúsund skjálftar á 15 dögumStærsti skjálftinn við Bláa lóniðJarðskjálfti fannst við Bláa lóniðReykjanesbraut lokuð að hluta í kvöld og nóttTveir snarpir skjálftar við GrindavíkHluti Grindavíkur án rafmagns í nóttReykjaneshöfn hefur sótt um enn einn frestinnMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnAndlit bæjarins: Síðasta sýningarhelgin um næstu helgi