Nýjast á Local Suðurnes

Um 150 nemendur FS tóku þátt í árlegum forvarnardegi ungra ökumanna

Árlegur forvarnardagur ungra ökumanna var haldinn í 88 Húsinu í dag og tóku um 150 nemendur á fyrsta ári í Fjölbrautaskóla Suðurnesja þátt. Markmiðið með verkefninu er að vekja ungmennin til umhugsunar um þá ábyrgð sem fylgir því að fá bílpróf, fækka umferðaslysum og auka öryggi í umferðinni.

Nemendur fengu fræðslu um afleiðingar umferðarlagabrota, sektir, tjónaskyldu og brot gegn 3ja aðila, þau fengu að prufa ölvunargleraugu. Sviðsett var umferðarslys á planinu við 88 Húsið og fengu nemendur að sjá hvernig lögregla og sjúkraflutningamenn athafna sig þegar slys verður og klippa þarf bíl í sundur.

Eins og undanfarin ár voru grillaðar pylsur handa öllum þátttakendum. Forvarnardagur ungra ökumanna er samstarfsverkefni Reykjanesbæjar, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Brunavarna Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Samgöngustofu og Tryggingamiðstöðvarinnar.

forvd fs