Nýjast á Local Suðurnes

Um 15.000 hafa horft á þrjú myndbönd Stopp-hópsins

Framkvæmdahópur “Stopp-hingað og ekki lengra!” hefur að undanförnu unnið að gerð myndbanda, þar sem rætt er við fólk sem lent hefur í umferðarslysum á Reykjanesbraut og hafa myndböndun verið birt á Facebook-síðu hópsins.

Um fimmtán þúsund manns hafa horft á fyrstu þrjú myndböndin sem birt hafa verið á síðunni og finna má hér fyrir neðan. Á síðunni er fólk hvatt til að deila myndböndunum.

Við hvetjum alla þá sem vilja leggja málstaðnum lið að deila þessu myndskeiði jafnt sem og hinum sem koma til með að birtast á næstu dögum. Saman þá getum við þrýst á stjórnvöld að tvöfalda Reykjanesbrautina og þannig fjárfesta í mannslífum. Segir í texta undir myndböndunum.

Það er Davíð Örn Óskarsson hjá Grafíksmíði sem sér um leikstjórn, klippingu og framleiðslu myndbanda Stopp hópsins.