Um 130 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðum vegna farþegaþotu WestJet
Mikill viðbúnaður var hjá björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu vegna farþegaþotu sem sendi frá sér neyðarkall laust upp úr klukkan 11.00 í morgun þar sem lítið afl var í öðrum hreyfli vélarinnar.
Alls tóku um 130 björgunarsveitamenn þátt í aðgerðunum sem lauk eftir að flugmenn vélarinnar lentu henni farsællega á Keflavíkurflugvelli kl 14.40, segir í tilkynningu frá Landsbjörgu.
Um borð í vélinni, sem er af gerðinni Boeing 767, voru 258 manns. Hún var á leið frá London til Edmonton í Kanada.