sudurnes.net
Um 100 þurftu frá að hverfa við úthlutun Fjölskylduhjálpar - Local Sudurnes
Um 100 manns þurftu frá að hverfa tómhentir við úthlutun Fjölskylduhjálpar í Reykjanesbæ síðasta föstu­dag, þar sem birgðir kláruðust. Þetta kemur fram í umfjöllun Morgunblaðsins um málefni flóttafólks í Reykjanesbæ, en þar kemur fram að á þeim degi hafi verið úthlutað matvörum til um 400 fjölskyldna. Þá kemur fram í umfjölluninni að Fjöl­skyldu­hjálp kaupi mikið af matn­um sjálf en einnig séu birgjar í höfuðborg­inni sem gefi þeim mat­væli. Erfitt sé þó að geyma marg­ar mat­vör­ur í lang­an tíma þar sem þau eru með tak­markað geymslupláss, einkum í kæliskáp­um. Þá er kallað eftir aðstoð frá Reykjanesbæ, en fram kom í máli forstöðukonu samtakanna að ef bæj­ar­fé­lagið sjái ekki fram á að getað aðstoðað sam­tök­in gæti það haft al­var­leg­ar af­leiðing­ar í för með sér. Meira frá SuðurnesjumUppsagnir hjá Bláa lóninu – 100 starfsmenn eftirYfir 100 sjálfboðaliðar hreinsuðu rusl á íþróttasvæðum KeflavíkurÞrjú staðfest smit á SuðurnesjumReykjanesbrautin á óvissustig og gæti verið lokað með stuttum fyrirvaraStarfsfólk Krambúðar ausið lofi – “Þau eru æði!”Grindvíkingar endurheimta og endursemja við sterka leikmennIsavia afhendir ekki gögn í KaffitársmáliÞrjú ný smit á Suðurnesjum og tæplega 200 í sóttkvíSegja börn verða fyrir áreiti erlendra karlmanna í strætóFyrrverandi sparisjóðsstjóri veitti 100 milljóna króna yfirdrátt án trygginga