U20 hópurinn hlaðinn Suðurnesjastúlkum – Enginn af Suðurnesjum í karlahópnum
Lansliðsþjálfarar u20 landsliðs kvenna og karla í körfubolta hafa valið 12 manna lið fyrir Evrópumótin sem fram fara í sumar.
Í kvennahópnum eru sjö af tólf leikmönnum frá Suðurnesjaliðunum Njarðvík og Grindavík. Enginn leikmaður frá Suðurnesjaliðunum hlaut náð fyrir augum þjálfara karlaliðsins.
Suðurnesjastúlkurnar sem eru í hópnum:
Anna Lilja Ásgeirsdóttir (Njarðvík)
Helena Rafnsdóttir (Njarðvík)
Hulda Björk Ólafsdóttir (Grindavík)
Lára Ösp Ásgeirsdóttir (Njarðvík)
Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir (Grindavík)
Thea Ólafía Lucic Jónsdóttir (Grindavík)
Vilborg Jónsdóttir (Njarðvík)