Tvö umferðarslys á Reykjanesbraut
Tvö umferðarslys urðu á Reykjanesbraut í morgun, annað við gamla afleggjarann inn í Krísuvík en þar skullu vörubíll og fólksbíll saman og vorur tveir fluttir á slysadeild. Ökumenn beggja bifreiða voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar en ekki er ljóst um ástand þeirra að svo stöddu.
Síðara slysið kom til eftir að Reykjanesbrautinni hafði verið lokað, til móts við Straum rétt sunnan við Straumsvík. Þar keyrði jeppi aftan á rútu sem var annaðhvort kyrrstæð eða á hægri ferð sökum lokunarinnar. Jeppinn endaði utanvegar en enginn slasaðist.
Reykjanesbraut var lokuð um tíma vegna slysanna, en hefur nú verið opnuð áný, en umferð gengur hægt.