sudurnes.net
Tvö ísraelsk flugfélög fljúga á KEF í sumar - Local Sudurnes
Fyrsta flugvél ísraelska flugfélagsins El Al frá Tel Aviv í Ísrael til Íslands lenti á Keflavíkurflugvelli um klukkan 14 í gær. Ferðin í gær var sú fyrsta af fimm hjá félaginu til Íslands í sumar með hóp ferðafólks frá Ísrael. Flogið verður til 18. ágúst. El Al bætist þannig í hóp með þeim 20 flugfélögum sem þegar hafa hafið flug til og frá Keflavíkurflugvelli nú í sumar. Í lok júlí, nánar tiltekið þann 27. júlí næstkomandi, bætist annað ísraelsk flugfélag Arkia í hópinn. Arkia flýgur 5 ferðir með ísraelska ferðahópa til landsins fram til 31. ágúst. Hvorugt flugfélagið hefur flogið áður til Keflavíkurflugvallar. Meira frá SuðurnesjumWOW-air býður upp á beint flug til ÍsraelCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðViðvörunarskilti sett upp við ReykjanesbrautStörf í boði fyrir ungt fólk í ReykjanesbæRáðherra staðfestir örnefnið FagradalshraunHráefni til framleiðslu United Silicon landað í HelguvíkÞrír af Suðurnesjum til BandaríkjannaÁtta skrifuðu undir hjá NjarðvíkNær allar landsliðsstúlkurnar frá SuðurnesjaliðunumRauðvínsröfl og hræsni á föstudegi