Nýjast á Local Suðurnes

Tveir út af á Grindavíkurvegi og þriggja bíla árekstur í Njarðvík

Nokkuð hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga. Bílvelta varð á Grindavíkurvegi og fór bifreiðin þrjár veltur áður en hún staðnæmdist. Annar ökumaður missti bifreið sína út af sama vegi. Í báðum tilvikum voru hálka og krapi á akbrautinni.

Í Njarðvík varð umferðaróhapp þar sem þrjár bifreiðir komu við sögu og svo útafakstur í Keflavík.

Ekki urðu alvarleg slys á fólki í þessum óhöppum en eignatjón talsvert.