sudurnes.net
Tveir urðu eftir í bænum við rýmingu - Local Sudurnes
Tveir menn urðu eftir þegar Grindavíkurbær var rýmdur aðfaranótt laugardags. Lögregla brýtur sér ekki leið inn í eignir í aðgerðum sem þessum sé ekki ástæða til þess, að sögn lögreglustjóra í samtali við fréttastofu RÚV. Annar mannanna er íbúi í Grindavík en hinn var einn á hótelherbergi. Bjarney Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn, segir í samtali við RÚV, að lögregla hafi orðið vör við mennina á laugardagsmorgun, en bærinn var að fullu rýmdur um klukkan fjögur aðfaranótt laugardags. Lögreglustjóri gerir ráð fyrir að mennirnir hafi sofið mjög fast. Hann segir ekki líklegt að fleiri hafi orðið eftir. „Ég hef engar upplýsingar um það og tel það mjög ólíklegt.“ Meira frá SuðurnesjumMisjöfn viðbrögð við úrræði Heimavalla – Íbúar ósáttir en formaður VR segir úrræðið fagnaðarefniSjálfboðaliðar tóku til hendinni í ReykjanesbæFramkvæmdir hafnar við gerð hjólastígs frá Reykjanesbæ að FLEMiklum verðmætum stolið úr ferðatöskuWashington Post dásamar Skessuna – Stopover farþegar mikilvægir fyrir SuðurnesinNaumt tap hjá Eyþóri í EgyptalandiSinubruni við gosstöðvar – Endurmeta stærð hættusvæðisMæla með veggjaldi – Lægsta gjald um Reykjanesbraut yrði 140 krónur aðra leiðNýr meirihluti að fæðast í ReykjanesbæNáðu að lenda en farþegar fá ekki að fara frá borði