sudurnes.net
Tveir öflugir skjálftar nálægt Grindavík - Local Sudurnes
Grindvíkingar fundu vel fyrir tveimur jarðskjálftum um klukkan tíu í morgun. Báðir skjálftarnir mældust yfir 3 að stærð. Samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofunnar varð fyrri skjálftinn klukkan 9:53 og var 3,5 að stærð. Óyfirfarin gögn sýna að skjálftinn átti upptök sín 3,1 kílómetra vestnorðvestur af Grindavík. Seinni skjálftinn varð aðeins fjórum mínútum síðar, klukkan 9:57. Sá var stærri, 3,6 að stærð og átti upptök sín 2,5 kílómetra norðvestur af Grindavík. Meira frá SuðurnesjumVeltan á fasteignamarkaði á Suðurnesjum tæpir þrír milljarðarSkjálfti að stærð 3,5 mældist norður af ReykjanestáÖflugir skjálftar á ReykjanesiLjúfir tónar og góðgæti á Erlingskvöldi Bókasafns ReykjanesbæjarSeldu fasteignir á Reykjanesi fyrir rúmlega tvo milljarða í marsTveir snarpir aðfangadagsskjálftarSeldu fasteignir fyrir tæpa tvo milljarða króna í ágústFyrrum Kadecoforstjóri kaupir álversbyggingu í HelguvíkOftast strikað yfir nöfn Margrétar og FriðjónsMikill áhugi í forvali Kadeco