Tveir fluttir á slysadeild eftir árekstur á Reykjanesbraut
Tveir voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur á Reykjanesbraut í hádeginu í dag.
Áreksturinn varð með þeim hætti að flutningabíl var ekið aftan á vegamerkingabíl sem var að störfum við mislæg gatnamót á Reykjanesbraut að Innri-Njarðvík. Einn ökumaður var í hvorum bíl og hafa þeir báðir verið fluttir á slysadeild.
Vegurinn er lokaður samkvæmt tilkynningu á vef Vegagerðarinnar en hjáleið er um Stapabraut og Njarðarbraut.