Nýjast á Local Suðurnes

Tveir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur á Garðvegi

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Ökumenn tveggja bifreiða voru fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í gær eftir árekstur á Garðvegi.  Fundu þeir báðir til talsverðra eymsla eftir óhappið. Dráttarbifreið þurfti til að fjarlægja bifreiðirnar af vettvangi.

Þá missti ökumaður bifreið sína út af Reykjanesbraut, við Kúagerði,  þegar hann ók í snjókrapa á veginum. Endaði bifreiðin um 20 metra frá veginum og var hún óökufær eftir útafaksturinn. Ökumaðurinn fann til eymsla og leitaði sjálfur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Í morgun var svo bifreið ekið aftan á aðra á Hringbraut í Keflavík. Sá sem ók aftan á var ekki orðinn 18 ára og hafði lögreglan á Suðurnesjum því samband við forráðamann hans.