Nýjast á Local Suðurnes

Tveir duttu í stiga og einn fékk hjólabretti í höfuðið

Nokkuð hefur verið um slys í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum að undanförnu. Ungur piltur datt á trampólíni og fékk hjólabretti í höfuðið. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar.

Þá féll karlmaður úr stiga og var fallið um þrír metrar. Hann var einnig fluttur á Heilbrigðisstofnun þar sem vakthafandi læknir kannaði meiðsl hans. Loks datt erlendur kennari, sem var á ferð með hóp barna í Bláa lóninu, í stiga. Hann fór úr axlarlið við byltuna.