sudurnes.net
Tveir báðu um að fá að kúra á lögreglustöð - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum þurft að hafa afskipti af þremur einstaklingum sem vísað var úr flugi vegna ölvunar. Tveir karlmenn sem áttu bókað flug til Gdansk fengu ekki að fara með vélinni af þessum sökum samkvæmt ákvörðun flugstjóra. Þeir gistu að eigin ósk á lögreglustöðinni í Keflavík. Sá þriðji lét ófriðlega í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þar sem honum hafði verið synjað um að fara um borð í flugvél vegna ölvunar og var hann ósáttur. Hann sættist á að fá flugmiða sínum breytt og láta renna af sér. Meira frá SuðurnesjumBáðust afsökunar á flugeldakastiSamið við Buzz um rekstur auglýsingabiðskýlaStarfsmenn erlendra ferðaskrifstofa kynntu sér möguleikana á ReykjanesiPróflaus undir áhrifum fíkniefna lét ekki segjast og var handtekinn tvisvarTeknir með umtalsvert magn af þýfi – Ekki nógu sterkir til að stela öllu sem þeir vilduEinungis 8 milljónir nýttar á Suðurnesjum – Sky lagoon stakk Bláa lónið afTekinn tvisvar á innan við 15 mínútumHlaut opið beinbrot eftir fall af vinnupalliÞarf að tilkynna sig til lögreglu þrisvar í viku eftir þjófnað á sígarettumTveir erlendir leikmenn yfirgefa Njarðvík