sudurnes.net
Tveir árekstrar á Reykjanesbraut með stuttu millibili - Tveir fluttir á slysadeild - Local Sudurnes
Flytja þurfti tvo undir læknis hendur eftir að harður árekstur varð milli tveggja bifreiða á Reykjanesbraut, nokkru norðan við Hafnaveg, í fyrradag. Var annar ökumannanna fluttur á bráðamóttöku Landspítala en hinn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Atvikið varð með þeim hætti að sterk vindhviða feykti annarri bifreiðinni til hliðar þeim afleiðingum að bifreið sem ekið var á eftir henni lenti í hlið hennar. Bílarnir voru báðir fjarlægðir af vettvangi með dráttarbifreið. Sama máli gegndi um tvær bifreiðar til viðbótar sem skullu saman þegar annarri var ekið í veg fyrir hina af Aðalgötu inn á Reykjanesbraut. Stöðvunarskylda er af fyrrnefndu götunni inn á Reykjanesbrautina. Ökumenn sluppu ómeiddir en bílarnir skemmdust talsvert. Meira frá SuðurnesjumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkByggingarfulltrúinn orðinn rafrænnVilja auka öryggi flugfarþega með því að reisa skjól­stöðvar við fjar­stæðiSjáðu hvort nafnið þitt var notað á meðmælendalistaRann­sókn­ar­nefnd sam­göngu­slysa rannsakar skemmtibátaslysLeikið á sumarflötum á Opna Nóa Siríusmótinu í LeiruUnnið að því að koma tvöföldun Reykjanesbrautar inn á samgönguáætlunKarlakórar sameinast á ókeypis tónleikum í Duus-húsumLoka á afgreiðslu skólamáltíða vegna ógreiddra reikninga