Þrír á slysadeild eftir að ökumaður dottaði undir stýri - Local Sudurnes
Ökumaður sem var á ferð norður Garðveg í fyrradag dottaði undir stýri með þeim afleiðingum að bifreiðin fór út af veginum. Hann og tveir farþegar sem voru í bifreiðinni voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem þeir kenndu verkja eftir óhappið. Áður hafði önnur bifreið runnið út af Reykjanesbrautinni í hálku. Ökumaður hennar slapp ómeiddur. Fleiri umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni en þau voru öll minni háttar og ekki meiðsl á fólki. Meira frá SuðurnesjumFluttur á HSS eftir veltu á GarðvegiHandtekinn vegna gruns um ölvun við akstur eftir ferð í vínbúðBílvelta á Reykjanesbraut – Ökumaður og farþegar fluttir á HSS til skoðunar53 útskrifuðust frá FS – Sylvía Rut er dúx haustannarErlendir ferðamenn veltu bíl sínum á SuðurstrandarvegiEndaði á toppnum eftir glæfraakstur á ReykjanesbrautÞyrla sótti einstakling í sjálfheldu við gosgíginnSautján ára á miklum hraðaFluttur á bráðamóttöku Landspítala eftir mótorhjólaslysVelta á Grindavíkurvegi og útafakstur á Reykjanesbraut