sudurnes.net
Tveimur ökumönnum veitt eftirför - Local Sudurnes
Einn þeirra tæplega 30 ökumanna sem lögreglan á Suðurnesjum hefur kært fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglubifreiðar á Reykjanesbraut heldur ók rakleiðis áfram í átt að Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Lögreglumenn veittu honum eftirför alllanga vegalengd en hann lét ekki segjast fyrr en annarri lögreglubifreið var ekið á móti honum og þá loks stöðvaði hann. Þarna var á ferðinni erlendur ferðamaður sem játaði hraðaksturinn, sem mældist 157 km á klukkustund, og greiddi sekt á staðnum. Öðrum ökumanni þurfti að veita eftirför þar sem viðkomandi stöðvaði ekki bifreið sína þrátt fyrir notkun forgangsljósa. Sá var grunaður um ölvunarakstur. Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af nær tíu bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar. Enn fremur hafði lögregla afskipti af allmörgum ökumönnum sem virtu ekki stöðvunarskyldu, töluðu í síma undir stýri án handfrjáls búnaðar eða lögði bifreiðum sínum ólöglega. Meira frá SuðurnesjumTekinn á 170 km/h með ungt barn í bílnum – Sviptur á staðnum og tilkynntur til barnaverndarÁtján ára á allt of miklum hraðaÁ tvöföldum hámarkshraða innanbæjarHávaði, kannabis og fjaðurhnífurMannlaus bifreið sem flautaði ótt og títt raskaði næturró íbúaÖlvaður ók á móti umferð á ReykjanesbrautLandsbankinn styrkir Bláa herinnDagbók lögreglu: Kærður fyrir vímuefnaakstur og vopnalagabrotSleppa við að sækja sófann en borga [...]