sudurnes.net
Tveimur mönnum bjargað úr sjó við Leiru - Local Sudurnes
Um hálfellefu í kvöld voru björgunarsveitir á Suðurnesjum kallaðar út vegna elds í bát rétt við Leiru. Um var að ræða 12 tonna plastbát með tveimur aðilum um borð, segir í tilkynningu frá Landsbjörgu. Búið er að ná mönnunum frá borði með þyrlu LHG en menn frá Brunavörnum Suðurnesja ásamt björgunarsveitarfólki fóru á staðinn á björgunarskipinu Hannesi Hafstein og fleiri bátum með dælur til að slökkva eldinn. Um 20 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðinni. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um hjá vakt­stjóra hjá Land­helg­is­gæsl­unni er ástand mann­anna talið gott þrátt fyr­ir veruna í sjón­um. Meira frá SuðurnesjumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkFjórir af grindvískum togara í einangrun í EyjumNýr Óli á Stað GK kominn á veiðarSkúta strandaði og bát rak upp í fjöruVinna með verktaka að lausn á sláttumálumÁramótabrennur á Suðurnesjum – Boðið upp á brennu í ReykjanesbæBjörgunarsveitin Þorbjörn tekur þátt í leit að manni á vestfjörðumÍ sóttkví um borð í bát í Grindavíkurhöfn vegna covidsmitsVilja byggja 74 íbúðir við Hafnargötu 12 – Hvað finnst þér?