sudurnes.net
Tvær sýningar opna og Súlan afhent - Local Sudurnes
Tvær listasýningar verða opnaðar hjá listasafni Reykjanesbæjar næsta laugardag klukkan 14. Á sama tíma fer fram afhending Súlunnar, en Súlan er veitt árlega einstaklingi eða fyrirtæki sem unnið hefur vel að menningarmálum í sveitarfélaginu. Annars vegar er um að ræða sýninguna Línur, flækjur og allskonar sem er einkasýning Guðrúnar Gunnardóttur og hins vegar er það sýningin You Are Here / Jesteś tutaj / Du er her / Þú ert hér, eftir Vena Naskręcka og Michael Richardt. Allir velunnarar menningarlífs í Reykjanesbæ eru boðnir velkomnir til að gleðjast með okkur yfir blómlegu menningarlífi og þiggja veitingar, segir í tilkynningu. Meira frá SuðurnesjumCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðGamaldags jólaboð í Duus safnahúsumSýna Formheim Bjargar ÞorsteinsdótturThe Sunday Boys koma fram í Grindavíkurkirkju – Lofa eftirminnilegum tónleikumStæði fyrir húsbíla og ferðavagna á tveimur stöðum á LjósanóttSafnmenn söfnuðust saman í Reykjanesbæ – Myndir!Blóðslettur og hnífar á víð og dreif um Bókasafn ReykjanesbæjarGrunnskólar settir á mánudag – 250 börn hefja skólagöngu í ReykjanesbæVefurinn Sumar í Reykjanesbæ kominn í loftiðReykjanesbær vill komast í farsímamyndirnar þínar