sudurnes.net
TripAdvisor setur Northern Light Inn í hóp 10 bestu hótela landsins - Local Sudurnes
Fyrr á árinu var Northern Light Inn valið eitt af bestu hótelum á Íslandi af notendum Trip Advisor. Hótelið var valið eitt af 10 bestu hótelum landsins í tveimur flokkum, fyrir þjónustu og fyrir rómantískar ferðir. þann 24. júní sl. fékk hótelið svo viðurkenningu frá Trip Advisor fyrir að hafa fengið topp einkunnir frá notendum síðunnar í fimm ár í röð. Í tilkynningu á Facebook síðu Northern Light Inn segir: „Í dag fékk Northern Light Inn viðurkenningu frá TripAdvisor, en fyrir að fá “Certificate of Excellence” fimm ár í röð þá fær hótelið nú viðurkenninguna “Hall of Fame” frá TripAdvisor. Við þökkum gestum okkar fyrir að gefa sér tíma til að skrifa um veru sína hjá okkur og ekki síður þökkum við frábæru starfsfólki okkar sem er ástæðan fyrir þessari viðurkenningu frá TripAdvisor.“ Meira frá SuðurnesjumGeoHotel á topp 10 lista TripAdvisorSuðurnesjahótelin skora hátt á bókunarvefsíðum – Dýrasta nóttin kostar milljónTjaldsvæði fær topp einkunn frá TripAdvisor – “This one is simply the best!”Íslenska Gámafélagið og Sorpa förguðu fjörurusli Bláa hersinsMálverkasýningar og kaffihúsaskemmtun í boði á Menningarviku á mánudagiLufthansa flýgur allt árið vegna mikillar eftirspurnarSporthúsið lokar – Áskriftir og kort gilda þegar opnar á nýEkkert áætlunarflug um Keflavíkurflugvöll í kvöld og nóttFramlengdu vegabréfin verða [...]