sudurnes.net
Tommi ánægður með áhugann - Mun þó ekki opna Búllu á Suðurnesjum - Local Sudurnes
Á dögunum var stofnaður hópur á Facebook með það í huga að þrýsta á eigendur Hamborgarabúllunar að opna stað í Reykjanesbæ, um 150 manns hafa “líkað” við síðuna. Athafnamaðurinn Tómas A. Tómasson, betur þekkur sem Tommi í Búllunni, eða á hér Suðurnesjum sem Tommi í Tommahamborgurum, mun þó ekki opna Hamborgarabúllu Tómasar í Reykjanesbæ í bráð, það gæti þó orðið möguleiki síðar. Tómas sagðist í samtali við Suðurnes.net bera sterkar taugar til Suðurnesjasvæðisins enda var fyrsti staðurinn sem hann opnaði staðsettur á Fitjum. “Það er einfaldlega of mikið að gera við að opna staði erlendis í augnablikinu, það fer öll okkar orka í það,” Sagði Tómas. Og hann bætti við: “Ég hef heyrt af hópnum á Facebook, og er ánægður með áhugann, enda ber ég sterkar taugar til svæðisins eftir að hafa opnað minn fyrsta stað í Njarðvík á sínum tíma og unnið í Grindavík í fjölda ára.” Hamborgarbúllan rekur sjö staði á Íslandi auk þess sem tveir staðir eru í London, einn í Kaupmannahöfn og einn í Berlín. En þrátt fyrir þrýstinginn verður einhver bið eftir því að Tommi og félagar opni Búlluna í Reykjanesbæ. Meira frá SuðurnesjumSkora á ráðherra – Ekki hægt að bíða lengur eftir heilsugæsluUm 100 manns klárir í útkall á korteri [...]