Nýjast á Local Suðurnes

Tómas sæmdur fálka­orðu

Tómas J. Knútsson, um­hverf­is­vernd­arsinni og stofnandi Bláa hersins, er einn fjór­tán Íslend­inga sem Guðni Th. Jó­hann­es­son, for­seti Íslands, sæmdi heiðurs­merki hinn­ar ís­lensku fálka­orðu við hátíðlega at­höfn á Bessa­stöðum á nýársdag. Riddarakrossin fékk Tómas fyrir framlag á vettvangi umhverfisverndar.

Hér fyrir neðan er listi yfir þá sem sæmdir voru heiðusrsmerki:

1. Agnes Anna Sigurðardóttir framkvæmdastjóri, Dalvík, riddarakross fyrir framlag til þróunar atvinnulífs í heimabyggð

2. Árni Magnússon fyrrverandi skólastjóri, Garðabæ, riddarakross fyrir störf á vettvangi félags- og skólamála

3. Björg Thorarensen prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir kennslu og rannsóknir á sviði lögfræði

4. Georg Lárusson forstjóri, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu

5. Guðríður Ólafs Ólafíudóttir fyrrverandi formaður Sjálfsbjargar, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til velferðar- og mannúðarmála

6. Guðrún Sveinbjarnardóttir fornleifafræðingur, Bretlandi, riddarakross fyrir framlag til fornleifarannsókna

7. Haraldur Briem fyrrverandi sóttvarnarlæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi heilsuverndar og lýðheilsu

8. Kristín Aðalsteinsdóttir fyrrverandi prófessor, Akureyri, riddarakross fyrir störf á vettvangi menntavísinda

9. Margrét Frímannsdóttir fyrrverandi alþingismaður, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu

10. Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar og jafnréttismála

11. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til mannréttindamála og réttindabaráttu

12. Tómas Knútsson vélvirkjameistari og stofnandi Bláa hersins, Sandgerði, riddarakross fyrir framlag á vettvangi umhverfisverndar

13. Valdís Óskarsdóttir kvikmyndagerðarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar kvikmyndagerðar

14. Þórhallur Sigurðsson leikari og tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar menningar