Nýjast á Local Suðurnes

Tölvur níunda áratugarins til sýnis í Keili

Föstudaginn 27. nóvember gefst tækifæri til að bregða sér aftur til níunda áratugar síðustu aldar og skoða sýnishorn af þeim tölvubúnaði sem ruddi veginn úr rannsóknarstofum og vísindastofnunum yfir í smærri fyrirtæki og síðan heim í stofu til tækniþyrstra dellukarla.

Þórhallur Ragnarsson, nemandi í tæknifræðinámi Háskóla Íslands og Keilis, hefur safnað tölvum um árabil og sýningin er verkefni sem hann skilaði í námskeiði í tövluhögun við skólann.

Meðal búnaðar á sýningunni eru Sinclair tölvur, Amstrad, IBM PC, Macintosh Plus og Atari. Upplýsingar um búnaðinn eru teknar saman á veggspjöldum, flestar tölvurnar eru gangfærar og hægt að sjá hvernig hugbúnaður var í boði til leikja og starfa. Hermar (emulators) verða í gangi á nútímatölvum og þeir sem vilja geta spreytt sig á einföldum forritunaræfingum í BASIC og ef til vill fleiri málum.

Sýningin verður opin frá klukkan 14:00 – 15:00 og er í stofu A4 í aðalbyggingu Keilis að Grænásbraut 910 á Ásbrú. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir að koma og sjá og endurlifa gömlu tölvuleikina sína.