Nýjast á Local Suðurnes

Töluvert um umferðaróhöpp – Gaf sig fram eftir að hafa ekið á tvær bifreiðar á Ásbrú

Töluvert hefur verið um umferðarslys og –óhöpp í umdæmi lögreglunnar á undanförnum dögum. Piltur sem ók vespu yfir gangstíg á Faxabraut í  fyrrakvöld varð fyrir því að vespan og bifreið sem ekið var eftir Faxabrautinni skullu saman. Annar piltur var farþegi á vespunni. Þeir voru fluttir undir læknis hendur en munu ekki hafa slasast alvarlega.

Þá varð þriggja bifreiða árekstur nærri Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ökumaður einnar bifreiðarinnar var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en reyndist ekki alvarlega slasaður.

Loks var ekið á tvær mannlausar bifreiðir á Ásbrú. Sá sem það gerði gaf sig svo fram á lögreglustöð skömmu síðar.