Nýjast á Local Suðurnes

Tóku þátt í risa björgunaræfingu á Faxaflóa

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Á annað hundrað manns tók þátt í risa björg­un­aræf­ingu sem hald­in var á Faxa­fló­an­um á sunnudag, þar á meðal voru félagar úr Björgunarsveitinni Suðurnes. Æfingin var sett þannig upp að tvö skip áttu að hafa lent í árekstri og það þriðja sem er á leið á slysstað til þess að bjarga farþegum skip­anna tveggja verður vél­ar­vana og þurftu björgunarsvetarmenn að bregðast við þessum aðstæðum.

Myndir frá æfingunni má sjá hér fyrir neðan.

Björgunarsveitarinnar Suðurnes bíða allskonar verkefni og æfingar í sumar, en sveitin mun líkt og undanfarin ár taka eina vakt í Hálendisvaktinni, að þessu sinni norðan Vatnajökul í eina viku í júlí. Einnig mun sveitin sinna gæslu á ýmsum viðburðum hér og þar um landið.