Tíu starfsmenn Isavia á fullu við að finna bílastæði fyrir farþega - Local Sudurnes
Tíu starfsmenn Isavia eru að störfum á bílastæðum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar til að leiðbeina fólki og leggja bílum. Isavia hefur í dag hvatt þá sem eru að fara í flug til að láta aka sér að Leifsstöð, taka rútu, strætó eða leigubíl þar sem langtímastæðin eru orðin full. „Það var fyrirséð að það yrði mikil umferð,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia við mbl.is. Stæðunum hefur verið fjölgað um 350 frá síðustu páskum eða um 15%. Að auki var bætt við 600 stæðum sérstaklega til að mæta hinni gríðarlegu páskaumferð. „Það reyndist ekki nóg. Þannig að nú erum við að tala um 25-30% yfirbókun á stæðunum sem er meiri aukning en við gerðum ráð fyrir. Þarna eru meira en 50% fleiri bílar en í fyrra.“ Í fyrra voru bílarnir á stæðinu 2000 og nú eru þeir um 3000. Enginn hefur misst af flugi vegna þessa vandamáls. Guðni segir tíu starfsmenn Isavia hafa aðstoðað bílstjórana við að finna bílunum pláss. Meira frá SuðurnesjumReykjanesbær býður í bílabíóSuðurnesjaliðunum spáð slæmu gengi í Dominos-deildinniMeistaramót GS hefst á morgun – Hólmsvöllur lokaður fyrir almennri umferðMatarvagnar setja stefnuna á SuðurnesinHagnaður hjá Kölku – Mikil aukning á endurvinnslustöðvumStikuðu þægilega gönguleið að gosinuNettó-mótið um helgina – Biðla til fólks [...]