Nýjast á Local Suðurnes

Tillaga að nýju aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar er tilbúin

Tillaga að nýju aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar ásamt umhverfisskýrslu fyrir Keflavíkurflugvöll er nú aðgengilegt áhttp://www.kefairport.is/Skipulagsmal/. Skipulagsgögnin verða einnig til sýnis á skrifstofu Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og hjá Skipulagsstofnun á Laugavegi 166 til og með 23. febrúar 2016.
Við gildistöku á nýju aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2013-2030 mun eldra aðalskipulag Keflavíkurflugvallar 2005-2025, sem staðfest var 24. febrúar 2006 falla úr gildi.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta gefst kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.  Skriflegar athugasemdir og ábendingar skulu berast skipulagsfulltrúa Keflavíkurflugvallar, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, 235 Keflavíkurflugvelli eða sveinn.valdimarsson@isavia.is.