sudurnes.net
Tilkynna þarf um breytingar á lögheimili og aðsetri með rafrænum hætti eftir áramót - Local Sudurnes
Frá og með næstu áramótum þurfa tilkynningar um lögheimilisskráningar að berast með rafrænum hætti. Einnig er hægt að fara í starfsstöðvar Þjóðskrár Íslands í Reykjavík eða á Akureyri og tilkynna breytt lögheimili innan lands og aðsetur. Jafnframt fellur úr gildi heimild til að skila inn tilkynningum til sveitastjórna, lögreglu og sýslumanna. Þann 1. janúar 2019 taka í gildi ný lög um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018. Í 13. grein laganna kemur fram að breyting á lögheimili innan lands og aðsetri skuli gerð rafræn eða á starfsstöðvum Þjóðskrár Íslands. Það sé í samræmi við reglugerð sem ráðherra er heimilt að setja. Með breytingunum mun Þjóðskrá hætta að taka á móti flutningstilkynningum frá sveitarfélögum landsins. Einstaklingar þurfa að hafa Íslykil eða rafræn skilríki til að geta nýtt sér rafrænu leiðina. Með því að smella á þennan tengil má panta Íslykil Með því að smella á þennan tengil má fá upplýsingar um rafræn skilríki Með því að smella á þennan tengil má lesa lögin Meira frá SuðurnesjumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnSamkaup er Menntasproti atvinnulífsinsSuðurnesjaþingmenn á meðal þeirra sem fá hæstu kostnaðargreiðslurnarKuldaleg veðurspá næstu dagaFrestun fasteignagjalda verður útvíkkuðSkemmtiferðaskip nýta þjónustu á Suðurnesjum í auknum mæliReykjanesbær [...]