Til vandræða á bílastæðum við gossvæðið - Local Sudurnes
Tveir hópar erlendra ferðamanna voru til vandræða við eitt bílastæðið á gosstöðvum við Litla-Hrút í gær Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum, en í tilkynningunni segir að hóparnir hafi verið til vandræða. Þeir hafi rifið niður lögregluborða á bílastæði við gosstöðvarnar og var snúið við af lögreglu. Ekki eru frekari upplýsingar um atvikið í tilkynningu lögreglu. Þar segir jafnframt að flestir sýni því skilning að aðgangur að inn á gossvæðið sé takmarkaður. Lögreglumenn, landverðir og sjúkraflutningamenn verða á svæðinu í dag og þá sinna björgunarsveitir þar útköllum en verða ekki að staðaldri. Svæðið verður opið í dag en loki klukkan 18:00, segir í tilkynningunni. Meira frá Suðurnesjum112 þúsund hafa skellt sér í sundMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnSandgerðingar á sumartímaKveikt á EM-Skjánum í skrúðgarðinum á föstudag klukkan 17.50Njarðvík fær nýjan þjálfaraÁfram lokað á gossvæðinuFóru eftir Google maps og festu bílinnBreytingar á HSS eftir að neyðarstig tók gildiMalbikað á Reykjanesbraut í dagReykjanesbraut lokuð að hluta í kvöld og nótt