Til umræðu að bjóða fleiri störf í sumar vegna uppsagna á Keflavíkurflugvelli - Local Sudurnes
Suðurnesjabær hefur til athugunar að ráða nemendur framhaldsskóla og háskóla til vinnu við verkefni hjá bæjarfélaginu í sumar, ef þeir fá ekki vinnu á Keflavíkurflugvelli vegna gjaldþrots WOW air. Einar Jón Pálsson, forseti bæjarstjórnar, segir að þetta sé ein þeirra aðgerða sem til umræðu sé og verði örugglega gripið til hennar ef ekki verði vinnu að hafa í sumar. Fall WOW air er áfall fyrir íbúa sveitarfélaganna á Suðurnesjum, sérstaklega Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar. Hluti starfsmanna flugfélagsins sem misstu vinnuna við gjaldþrotið og var sagt upp af þjónustufyrirtækjum í kjölfarið er búsettur í þessum sveitarfélögum. Meira frá SuðurnesjumBæjarráð Reykjanesbæjar: Fall WOW-air mun hafa mikil samfélagsleg áhrif til skamms tímaÍslensku flugfélögin bjóða upp á innritun alla nóttinaBörnum neitað um innritun í flug til Íslands – Enga hjálp að fá hjá WOW airSuðurnesjamær ein af „bestu flugfreyjum heims“Fylgist náið með framvindu mála í kjölfar gjaldþrots WOW-air15 milljónir til Suðurnesja vegna þrots WOWVonast til að geta dregið stóran hluta uppsagna til bakaBase hótel Skúla Mogensen sett á söluÍ málarekstri við WOW vegna 31 milljóna króna skuldarUppsagnir og sparnaðaraðgerðir hjá Isavia