Til stendur að laga hættulegan vegarkafla á Grindavíkurvegi sem fyrst
Til stendur að laga hættulegan vegarkafla á Grindavíkurvegi, sem fyrst. Jón Gunnarsson, samgönguráðherra, hefur þegar látið þau boð ganga til Vegagerðarinnar að ráðist verði í að gera tillögur að úrbótum á þeim kafla.
Samgönguráðherra greindi frá þessu í kvöldfréttum RÚV, en á sama tíma greindi hann frá því að útboðsferli vegna mislægra gatnamóta á mótum Reykjanesbrautar og Krísuvíkurvegar hefjist síðar í þessari viku.