Nýjast á Local Suðurnes

Til skoðunar að skipastóll Landhelgisgæslu hafi aðstöðu hjá Reykjaneshöfn

Dómsmálaráðuneytið hefur áhuga á að skoða möguleika á því að skipastóll Landhelgisgæslu Íslands (LHG) hafi aðstöðu hjá Reykjaneshöfn.

Þetta kemur fram í svarbréfi ráðuneytisins við sameiginlegu erindi Reykjaneshafnar og Reykjanesbæjar frá því í apríl síðastliðnum til LHG þar sem boðið var upp á viðræður um möguleika á framtíðarhafnaraðstöðu fyrir skipastól LHG hjá Reykjaneshöfn.

Stjórn Reykjaneshafnar ræddi málið á síðasta fundi sínum og fagnar því að skoðaður sé möguleiki á því að framtíðaraðstaða skipastóls Landhelgisgæslu Íslands verði hjá Reykjaneshöfn og felur hafnarstjóra að vinna það mál áfram í samráði við bæjaryfirvöld Reykjanesbæjar.