Nýjast á Local Suðurnes

Þyrla landhelgisgæslunnar kölluð út vegna fjórhjólaslyss

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar var kölluð út á þriðja tím­an­um í dag vegna fjór­hjóla­slyss á Suður­nesj­um. Slysið átt sér stað á vegi sem ligg­ur frá Suður­stranda­vegi að Djúpa­vatni.

Ökumaður fjór­hjóls­ins var flutt­ur með þyrlunni á Land­spít­al­ann í Foss­vogi til aðhlynn­ing­ar. Frá þessu er greint á vef mbl.is en þar kemur fram að sá sem slasaðist á fjór­hjól­inu sé Íslend­ing­ur og að áverk­ar hans séu ekki al­var­leg­ir, að sögn lög­regl­unn­ar á Suður­nesj­um.