Nýjast á Local Suðurnes

Þurftu að lenda á Keflavíkurflugvelli – Erlendur á leið frá London til Detroit veiktist

Lögreglu barst á dögunum tilkynning um að lenda þyrfti farþegaflugvél frá Delta flugfélaginu á Keflavíkurflugvelli, en farþegi vélarinnar hafði veikst skyndilega.

Vélin var að koma frá Heathrowflugvelli í London og var á leið til Detroit í Bandaríkjunum. Læknir og hjúkrunarfræðingur sem voru um borð hlúðu að farþeganum þar til að vélinni var lent á Keflavíkurflugvelli.

Farþeginn var svo fluttur með sjúkrabifreið á Heilbriðisstofnun Suðurnesja.