Þurfti aðhlynningu eftir að hafa verið bitin af hundi
Kona kom á lögreglustöðina í Keflavík í fyrradag og tilkynnti að hún hefði verið bitin af hundi. Hafði hún verið með sinn hund á göngu þegar laus hundur kom aðvífandi og ruku hvuttarnir svo saman.
Lausi hundurinn beit konuna sem leitaði til læknis þar sem bitsárið var saumað og henni var gefin stífkrampasprauta, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu.