sudurnes.net
Þrýstingur byggist upp og líkur á gosi aukast - Local Sudurnes
Líkanreikningar sýna að kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram á sama hraða og áður. Í fyrri atburðum hefur kvika hlaupið þegar heildarmagn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi er á bilinu 8 til 13 milljónir rúmmetra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu, en þar segir að heildarmagn kviku undir Svartsengi sé komið yfir þau mörk, sem greint er frá hér að ofan. Þrýstingur í kvikuhólfinu heldur því áfram að byggjast upp og auknar líkur eru á nýju kvikuhlaupi yfir í Sundhnúksgígaröðina og jafnvel eldgosi á næstu dögum. Nánar á vef Veðurstofu: https://www.vedur.is/um-vi/frettir/jardhraeringar-grindavik Meira frá SuðurnesjumHörður áfram með KeflavíkPortúgölsk landsliðskona til Grindavíkur – Skoraði í fyrsta leikGreidd verða atkvæði um fimm tillögur að nöfnumStarfsemi leikskóla komin í eðlilegt horf eftir mygluvandamálSmituðum fjölgar lítillega á Suðurnesjum – Forgangsraðað í sýnatökurMinningastund III á LjósanóttÁrituð treyja Arnórs Ingva á uppboðiGrindavík á toppnum í kvennaboltanumGoogle býður stúlkum á aldrinum 8 til 13 ára á ókeypis forritunarnámskeiðFínt veður næstu daga