Þróttarar deildarmeistarar
Þróttur úr Vogum tryggði sér í gær deildarmeistaratitilinn í 2. deild karla í knattspyrnu með því að gera 2:2 jafntefli við Magna á heimavelli.
Titlinum var vel fagnað í Vogum, meðal annars með veglegri flugeldasýningu á vegum Björgunarsveitarinnar Skyggnis.