Nýjast á Local Suðurnes

Þrjú vinnuslys á Suðurnesjum – Flugvirki fékk hurð í andlitið

Þrjú vinnuslys hafa orðið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum það sem af er vikunni. Karlmaður sem var við vinnu sína á palli féll ofan af honum og lenti illa á hægri öxl. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.

Þá féll starfsmaður um rekkverk á skipi sem lá í Njarðvíkurhöfn. Var talið að viðkomandi hefði mögulega fótbrotnað.

Loks slasaðist flugvirki, sem var að vinna við hurð aftast í flugvél, þegar hurðin var skyndilega opnuð og lenti í andliti hans með þeim afleiðingum að hann hlaut nokkra áverka og vankaðist. Tveir hinir síðarnefndu voru fluttir af vettvangi með sjúkrabifreið.