Þrjú staðfest smit á Suðurnesjum
Þrjú staðfest kórómuveirusmit eru í Suðurnesjalæknisumdæmi, samkvæmt fundargerð neyðarstjórnar Reykjanesbæjar frá því í gær. Fimmtíu staðfest smit eru á landinu öllu.
Á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í gær voru boðaðar harðari aðgerðir og samkomureglur sem taka gildi á hádegi í dag, 31. júlí.
Samkomur miðast við hámark 100 manns. 2 metra reglan innleidd aftur og er nú skylda. Ef ekki er hægt að virða 2 metra er skylda að vera með grímur og hanska.
Vinnustaðir eru hvattir til að efla sóttvarnir, hafa nóg af spritti, hönskum og nota grímur.