Nýjast á Local Suðurnes

Þrjár kjördeildir í Reykjanesbæ – Hér eru allar upplýsingar varðandi kosningarnar

Alþingiskosningar fara fram laugardaginn 29. október. Í Reykjanesbæ verða níu kjördeildir starfandi á þremur kjörstöðum, Akurskóla, Njarðvíkurskóla og Heiðarskóla. Kjörstaðir opna kl. 09:00 og loka kl. 22:00. Allir sem hyggjast kjósa þurfa að taka með sér gild persónuskilríki. Hér fyrir neðan er tengill með upplýsingum um kjördeildir, kjörskrá og aðrar upplýsingar varðandi Alþingiskosningarnar.

Alls 12 listar eru í framboði en 11 þeirra bjóða fram í Suðurkjördæmi. Það eru:

A-listi:   Björt framtíð
B-listi:   Framsóknarflokkur
C-listi:   Viðreisn
D-listi:   Sjálfstæðisflokkur
E-listi:   Íslenska þjóðfylkingin
F-listi:    Flokkur fólksins
P-listi:    Píratar
R-listi:   Alþýðufylkingin
S-listi:    Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands
T-listi:    Dögun – stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði
V-listi:   Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Hér má nálgast upplýsingar um kjörfund íbúa og skiptingu eftir hverfum Reykjanesbæjar. – 174KB

Hér má fletta upp í kjörskrá.