Nýjast á Local Suðurnes

Þrír umsækjendur um embætti prests í Njarðvíkurprestakalli

Þrír umsækjendur eru um embætti prests í Njarðvíkurprestakalli, Kjalarnessprófastsdæmi. Þeir eru í stafrófsröð mag.theol. Anna Þóra Paulsdóttir, cand.theol. Bryndís Svavarsdóttir og sr. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir.

Þarfagreining prestakallsins lá til grundvallar auglýsingunni og rann umsóknarfrestur út 5. apríl sl. Kjörnefnd prestakallsins kýs á milli umsækjenda bindandi kosningu. Biskup Íslands skipar í embættið frá 1. maí nk. til fimm ára í ljósi niðurstöðu kjörnefndar.