sudurnes.net
Þrír áfangastaðir bætast við hjá Norwegian - Lág fargjöld og sveigjanleiki - Local Sudurnes
Norska lággjaldaflugfélagið Norwegian mun hefja flug frá Íslandi til þriggja nýrra áfangastaða í haust, London, Barcelona og Madríd. Í dag flýgur Norwegian frá Keflavík til Osló og Bergen. Frá 1. nóvember mun félagið fljúga til London á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Sama dag verður jómfrúarflug Norwegian frá Keflavík til Madrid. Þangað verður flogið tvisvar í viku, á þriðjudögum og laugardögum. Frá og með 2. nóvember mun Norwegian svo fljúga frá Keflavík til Barcelona. Áætlunarflugið verður tvisvar í viku. Á miðvikudögum og laugardögum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu, en þar segir einnig að félagið ætli að bjóða upp á lág fargjöld og sveigjanleika fyrir farþega. Meira frá SuðurnesjumFinnair og Norwegian bæta við flugleiðum til og frá KeflavíkurflugvellieasyJet bætir í – Flogið verður 73 sinnum í viku frá KEF til LondonSkilaði af sér 70 pakkningum af kókaíniMilljóna lottómiði seldur í NjarðvíkSkrifað undir samkomulag um Suðurnesjalínu 2Erill í FLE: Einn færður í handjárn og nokkrir gripnir með sviplík og grunnfölsuð skilríkiÞarf að tilkynna sig til lögreglu þrisvar í viku eftir þjófnað á sígarettumMikill viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli vegna farþegaþotuLeggja til hækkun á sérstökum húsnæðisbótumFlugliðar fluttir á HSS eftir neyðarlendingu vélar British Airways