Þriggja leikja bann fyrir hreðjatak sem náðist á myndband
Zvonko Buljan, leikmaður Njarðvíkur í körfuknattleik, hefur verið úrskurðaður í þriggja leikja bann vegna atviks í leik gegn KR í fyrstu umferð Dominos-deildar karla.
Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar er sú að ljóst sé að um ásetning hafi verið að ræða þegar Buljan greip í kynfæri leikmanns KR í leiknum. Myndband af atvikinu sýni með óyggjandi hætti að brot hafi verið framið sem hefði leitt til brottvísunar, hefði dómari séð það. Vísað til heimildar nefndarinnar til að dæma þannig vegna agabrots sem framið hafi verið án vitundar dómara og heimildar til að byggja á myndbandsupptöku.