Nýjast á Local Suðurnes

Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut – Ökumennirnir sluppu allir ómeiddir

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Árekstur varð milli létts bifhjóls og bifreiðar í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í morgun. Bifreiðinni var ekið út af bifreiðastæði og í veg fyrir bifhjólið. Ökumaður síðarnefnda farartækisins kenndi eymsla eftir óhappið og var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar.

Dagana um og fyrir helgi urðu fleiri óhöpp í umferðinni. Ökumaður missti stjórn bifreið sinni á Byggðavegi og hafnaði hún á bifreið sem ekið var úr gagnstæðri átt. Ökumaður síðarnefndu bifreiðarinnar reyndi að forða árekstrinum með því að aka út af veginum en náði því ekki. Engin slys urðu á fólki.

Loks varð þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut þar sem bifreið var ekið aftan á aðra með þeim afleiðingum að hún lenti á þriðju bifreiðinni sem var fyrir framan hana. Ökumennirnir sluppu allir ómeiddir en einn bíllinn var óökufær eftir óhappið.