sudurnes.net
Þrettán óku of hratt og tveir undir áhrifum fíkniefna - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum tók tvo ökumenn úr umferð um helgina þar sem þeir voru undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Annar þeirra, karlmaður á þrítugsaldri, reyndist vera með hnúajárn í vasa sínum. Auk aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna á hann því einnig kæru yfir höfði sér vegna brots á vopnalögum. Þá hafa þrettán ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Flestir voru á ferð á Reykjanesbraut. Sá sem hraðast ók mældist á 127 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Af þessum þrettán ökumönnum voru þrír sem ekki höfðu náð átján ára aldri og var forráðamönnum þeirra gert viðvart. Loks voru tveir ökumenn stöðvaðir sem báðir reyndust vera ölvaðir undir stýri. Meira frá SuðurnesjumMeð allt niðrum sig í umferðinni – Þrír handteknirUm 40 ökumenn kærðir fyrir of hraðan aksturTekinn á 164 km hraða – Staðgreiddi rúmlega 100.000 króna sektUndir áhrifum fíkniefna á 192 kílómetra hraðaSektaður um 230 þúsund krónur vegna hraðakstursMeð kannabisrafrettu á 135 km hraðaDýr hraðakstur á ReykjanesbrautFær 250.000 króna sekt fyrir hraðaksturRúmlega tvítugur í virkilega slæmum málumStöðvuðu 150 ökumenn