Nýjast á Local Suðurnes

Þorsteinn hættir hjá Grindavíkurbæ – Ráðinn sveitarstjóri Skútustaðahrepps

Mynd: Grindavik.net

Þorsteinn Gunnarsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Skútustaðahrepps, hann lætur því af störfum hjá Grindavíkurbæ, eftir 9 ára starf, fyrst sem upplýsinga- og þróunarfulltrúi og svo sem sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Þá starfaði Þorsteinn um árabil í fjölmiðlum, m.a. á Stöð 2. Hann er með meistarapróf í verkefnisstjórnun (MPM) og diplóma og í opinberri stjórnsýslu og lærði fjölmiðlafræði í Svíþjóð á sínum tíma.

Þetta kemur fram á vef 641.is, en þar segir einnig að alls hafi borist 23 umsóknir um starfið. Ráðningin var gerð í samstarfi við Capacent sem hafði umsjón með úrvinnslu umsókna.